Einkalífið er að trufla Kieran Trippier bakvörð Newcastle sem hefur misst stöðu sína í byrjunarliði Newcastle og vill burt.
Enskir miðlar fjalla um málið en eiginkona hans Charlotte fékk nóg í sumar og vill skilnað.
Bæði hafa sést undanfarið án þess að vera með hringa en saman eiga Trippier og Charlotte þrjú börn.
Ástæðan fyrir skilnaðinum á að vera sá að Trippier var að daðra við aðrar konur á næturlífinu.
Charlotte flutti burt með börnin þeirra þrjú og hefur fundið sér hús í úthverfi Manchester.
Ensk blöð segja að Trippier vilji burt frá Newcastle strax í janúar en Fenerbache og AC Milan eru sögð hafa áhuga.