Erik ten Hag stjóri Manchester United biður fólk um að treysta því sem hann segir, hann segir fólk verði að gera það frekar en að hlusta á sérfræðinga.
Ástæðan er sú að Ten Hag setti Marcus Rashford á bekkinn gegn Crystal Palace um síðustu helgi. Ten Hag sagðist vera að hvíla hann.
Sérfræðingar í enska boltanum fóru að efast um Ten Hag sem var reiður yfir því.
„Ég skil ekki gagnrýnina þarna, fólk á ekki að búa til sögur,“ segir Ten Hag.
„Ef ég útskýri málin, þá þarf fólk að treysta orðum mínum. Annað er ekki eðlilegt.“