Chelsea vann sannfærandi heimasigur í deildabikarnum í kvöld er liðið mætti Barrow á Stamford Bridge.
Barrow átti enga möguleika gegn Chelsea í kvöld en liðið leikur í fjórðu efstu deild.
Christopher Nkunku nýtti tækifærið í kvöld og skoraði þrennu fyrir Chelsea og þá gerði Pedro Neto sitt fyrsta mark í öruggum 5-0 sigri.
Manchester City vann Watford á sama tíma en þeim leik lauk með 2-1 sigri City á Etihad vellinum.
Aston Villa lagði þá Wycombe 2-0 og Walsall í fjórðu deildinni tapaði í vítakeppni gegn Leicester.