Það var ekki erfið ákvörðun fyrir Erik ten Hag að taka Marcus Rashford úr byrjunarliði Manchester United í gær.
Það er Ten Hag sjálfur sem segir frá en Rashford kom inná sem varamaður í markalausu jafntefli við Crystal Palace.
Rashford hafði fyrir það verið flottur í deildabikarnum er United vann 7-0 sigur á Barnsley.
Alejandro Garnacho fékk kallið að þessu sinni en báðum leikmönnum mistókst að komast á blað.
,,Nei þetta var ekki erfið ákvörðun. Við þurfum að breyta liðinu, við spilum marga leiki og þurfum að gefa Alejandro tækifæri,“ sagði Ten Hag.
,,Við höfum séð að hann skilar sínu fram á við, hann skorar mörg mörk og leggur upp. Hann hafði aðeins byrjað einn leik í vetur.“