Erling Haaland var heppinn undir lok leiks gegn Arsenal í kvöld en leikið var á Etihad vellinum í Manchester.
Haaland fagnaði jöfnunarmarki sinna manna gegn Arsenal en það var skorað á 98. mínútu eftir hornspyrnu.
Haaland kastaði boltanum í haus varnarmannsins Gabriel en Michael Oliver, dómari leiksins, hefur misst af atvikinu.
Margir stuðningsmenn Arsenal eru afskaplega ósáttir með þessa hegðun Haaland en myndband af þessu má sjá hér.
Haaland threw the ball at Gabriel 😭😭pic.twitter.com/lxjA1ZNq9V
— 𝐄𝐑 (@ErlingRoIe) September 22, 2024