Einn stærsti ef ekki stærsti leikur tímabilsins fer fram í dag er Manchester City og Arsenal eigast við.
Um er að ræða tvö af bestu liðum Englands en leikið er á Etihad vellinum í Manchester í fimmtu umferð.
Liverpool tók toppsætið í gær með sigri á Bournemouth en bæði Arsenal og City geta komist í fyrsta sætið með stigum í dag.
Hér má sjá byrjunarliðin í Manchester.
Manchester City: Ederson, Walker, Akanji, Dias, Gvardiol, Rodrigo, Gundogan, Bernardo, Savinho, Doku, Haaland.
Arsenal: Raya, Timber, Saliba, Gabriel, Calafiori, Rice, Partey, Havertz, Saka, Trossard, Martinelli.