KA leiðir 1-0 gegn Víkingi í úrslitum bikarsins en seinni hálfleikur fer senn að hefjast.
Á reiki er hver skoraði markið en líklega endar það sem sjálfsmark hjá Oliver Ekroth varnarmanni Víkings.
Líklega hefði markið aldrei átt að senda því Ívar Örn Árnason fékk boltann í höndina.
Fáir tóku eftir þessu en Hörður Magnússon tók eftir þessu. „Þetta mark á ekki að standa,“ sagði Hörður á RÚV.
Þetta má sjá hér að neðan.
Ívar vill fá markið skráð á sig. Sérfræðingarnir í stúdíóinu segja þó að Ívar hafi fengið boltann í höndina og að markið hefði ekki átt að standa. pic.twitter.com/MHkPBJ4oLK
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 21, 2024