Reginaldo Pereira fyrrum aðstoðarmaður Richarlison framherja Tottenham hefur kært kappann og segir hann hafa komið illa fram við sig.
Pereira kom með Richarlison árið 2017 þegar hann flutti tl Englands, þá samdi hann við Watford en hann fór síðan til Everton.
Pereira var svo rekinn úr starfi sínu eftir nokkur ár en hann segir Richarlison hafa komið illa fram við sig.
Hann hafi þurft að vinna langa daga, aldrei fengið frí og reglulega verið skammaður af Richarlison og fjölskyldu hans.
Pereira var rekinn og fékk ekkert greitt eftir það, hann fer fram á 17 milljónir punda í bætur.
Það verður að teljast ólíklegt að Pereira fái 3 milljarða frá Richarlison en hann gæti þó fengið einhverjar bætur.