Manchester City er farið að skoða það að kaupa Marc Guehi miðvörð Crystal Palace næsta sumar.
Newcastle var í allt sumar að eltast við Guehi en vildi ekki borga 65 milljónir punda.
Palace þarf líklega að lækka verðmiða sinn næsta sumar þegar Guehi mun eiga ár eftir af samningi sínum.
Guehi er enskur landsliðsmaður en Pep Guardiola stjóri City er samkvæmt enskum blöðum spenntur fyrir honum.
Guehi vildi fara til Newcastle en félagið vildi ekki borga uppsett verð.