fbpx
Fimmtudagur 05.september 2024
433Sport

Tómas Þór hættur á Símanum og Höddi Magg tekur við enska

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. september 2024 11:37

Tómas þór.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íþróttafréttamaðurinn ástsæli, Hörður Magnússon, er nýr stjórnandi Vallarins þar sem farið er yfir allt það helsta hverju sinni úr enska boltanum. Hörður mun einnig lýsa fjölda leikja sem verður að teljast gleðiefni enda hefur Hörður verið einn vinsælasti lýsandi landsins um langt árabil.
Þættinum hefur síðustu ár verið stýrt af Tómasi Þór Þórðarsyni sem hefur ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum.

Birkir Ágústsson, dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar hjá Símanum:
„Við erum afskaplega spennt að fá Hörð til liðs við okkur og við trúum því að áhorfendur muni taka vel í þær áherslubreytingar sem hann færir okkur enda Hörður hokinn af reynslu þegar kemur að bæði dagskrárgerð sem og lýsingu leikja. Ástríða hans og áhugi á fótbolta mun skila sér hratt og vel á skjáinn. Að sama skapi þökkum við Tómasi Þór kærlega fyrir óeigingjarnt starf síðustu ár og frábært samstarf og óskum honum alls hins besta í hverju sem hann tekur sér fyrir hendur.“

Hörður Magnússon:
„Ég tek við keflinu úr góðum höndum og er gífurlega spenntur að snúa aftur í enska boltann, besta sjónvarpsefni í heimi. Með nýjum manni í brúnni koma nýjungar, ný andlit og ný tímasetning en Völlurinn verður framvegis á mánudagskvöldum. Ný tímasetning mun gera okkur kleift að gera enn betur og kryfja málin til mergjar. Sömuleiðis er ég fullur tilhlökkunar að setjast niður við hljóðnemann og lýsa stórleikjum enska boltans beint heim í stofu.“

Tómas Þór Þórðarson:
„ Það er ekki léttvæg ákvörðun að stíga frá borði núna eftir fimm ára starf. Ég er afskaplega stoltur af mínum fimm árum hjá Símanum þar sem ég hef unnið með frábæru fólki og fengið einstakt tækifæri til að byggja eitthvað upp frá grunni. Þetta hefur verið einstakur tími sem nú tekur enda. Ég óska mínu fólki alls hins besta í framtíðinni og þakka kærlega fyrir mig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Völdu verstu kaup sumarsins í Bestu deildinni – „Aron er rándýr leikmaður“

Völdu verstu kaup sumarsins í Bestu deildinni – „Aron er rándýr leikmaður“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hræðilega vandræðalegt augnablik þegar Declan Rice mætti í enska landsliðið

Hræðilega vandræðalegt augnablik þegar Declan Rice mætti í enska landsliðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Eiginkonan flytur með til Englands – Ánægð að vera komin í hóp þeirra hörðustu

Eiginkonan flytur með til Englands – Ánægð að vera komin í hóp þeirra hörðustu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir að þetta séu verstu kaup í sögu Manchester United – Nefnir nokkra aðra

Segir að þetta séu verstu kaup í sögu Manchester United – Nefnir nokkra aðra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ísak Bergmann – „Við getum komist á HM ef við eigum góða Þjóðadeild“

Ísak Bergmann – „Við getum komist á HM ef við eigum góða Þjóðadeild“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Willum elskar nýtt líf á Englandi – „Menn hlusta þegar Tom Brady talar“

Willum elskar nýtt líf á Englandi – „Menn hlusta þegar Tom Brady talar“