fbpx
Föstudagur 30.ágúst 2024
433Sport

Glugganum skellt í lás í kvöld – Sancho færist nær Chelsea og hvað gerir Sterling?

Hörður Snævar Jónsson, Helgi Sigurðsson
Föstudaginn 30. ágúst 2024 20:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagaskiptaglugginn í helstu deildum Evrópu lokar í kvöld og félög þurfa því að hafa hraðar hendur á markaðnum. Það má búast við að fjöldi leikmanna færi sig um set í dag, líkt og venjan er á þessum degi.

Glugginn lokar klukkan 22 að íslenskum tíma og hér að neðan munu helstu félagaskiptafregnir dagsins birtast í lifandi uppfærslu:

21:34 Orri Steinn Óskarsson er genginn í raðir Real Sociedad frá FCK. Meira hér.

20:54 Manuel Ugarte hefur verið kynntur sem nýr leikmaður Manchester United. Meira hér.

20:54 Jadon Sancho er að ganga í raðir Chelsea á láni frá Manchester United með kaupskyldu. Meira hér.

20:30 Verið er að yfirfara smáatriði áður en skipti Ivan Toney frá Brentford til Al-Ahli ganga í gegn.

20:30 James Ward-Prowse er mættur í læknisskoðun hjá Nottingham Forest.

20:30 Raheem Sterling er við það að ganga í raðir Arsenal.

20:06 Markvörðurinn Neto er genginn í raðir Arsenal frá Bournemouth. Meira hér.

20:06 Tammy Abraham er mættur til AC Milan á láni frá Roma

19:49 Varnarmaðurinn Nat Phillips er farinn á láni til B-deildarliðs Derby frá Liverpool, en samningur hans á Anfield rennur út næsta sumar.

19:49 Það stefnir í að Reiss Nelson fari á láni frá Arsenal til nýliða Ipswich. Ýtir það undir að Raheem Sterling sé á leiðinni.

19:41 Ivan Perisic er líklega á leið til nýliða Como í Serie A frá uppeldisfélaginu Hajduk Split í Króatíu.

19:14 Það verður æ líklegra að Raheem Sterling endi hjá Arsenal í kvöld. Meira hér.

19:14 Napoli er þá búið að landa Scott McTominay, samlanda Gilmour, frá Manchester United. Meira hér.

19:14 Billy Gilmour er á leið til Napoli frá Brighton. Meira hér.

18:53 Enn er óljóst hvað verður um Raheem Sterling. Það heillar leikmanninn að ganga í raðir Arsenal, en hann er úti í kuldanum hjá Chelsea.

18:53 Chelsea reynir enn við Victor Osimhen en tíminn er naumur.

18:53 Trevoh Chalobah er á láni frá Crystal Palace til Chelsea. Enginn kaupmöguleiki eða kaupskylda er inni í lánssamningnum.

18:53 Manchester United kaupir miðjumann frá Malí. Meira hér.

17:38 Raheem Sterling mun gefa sig allan fram fyrir varalið Chelsea ef hann þarf að vera áfram hjá félaginu. Meira hér.

17:38 Newcastle er búið að vera að reyna að fá Anthony Elanga frá Nottingham Forest en síðarnefnda félagið hafnar öllum tilboðum.

17:08 Miðjumaðurinn Stefan Bajcetic er genginn í raðir RB Salzburg á láni frá Liverpool.

16:47 Það stefnir í að Jadon Sancho fari á láni til Chelsea í dag. Tvö mismunandi tilboð frá félaginu eru nú á borði Manchester United. Meira hér.

16:35 Stórtíðindi af Orra Steini Óskarssyni sem er að fara frá FCK til Real Sociedad. Meira hér!

15:15 Arsenal staðfestir Neto – Ólíklegt að Sterling komi

15:50 Chelsea færist nær því að fá Osimhen

14:55 Chelsea lánar

Markvörðurinn Djorde Petrovic hefur verið lánaður til Strassbourg en Todd Boehly á félagið einnig

14:53 Áfall fyrir Newcastle!

Marc Guehi mætir ekki til Newcastle, Crystal Palace hefur staðfest að hann verði ekki seldur úr þessu. Allt sumarið hjá Newcastle hefur farið í að eltast við kauða.

14:52 Neto endar hjá Arsenal í kvöld

14:51 Sancho endar hjá Chelsea í kvöld

13:21 United er að reyna að kaupa Chukwuemeka af Chelsea

13:19 Sofyan Amrabat, sem var á láni hjá Manchester United í fyrra, er að ganga í raðir tyrkneska félagsins Fenerbahce frá Fiorentina.

12:48 Ten Hag segir að Sancho verði áfram

11:48 Staðfest að Arsenal sé búið að selja Aaron Ramsdale

11:42 Nóg að gera hjá Chelsea – Skoða Calvert-Lewin og Sancho gefur grænt ljós

11:14 United náði ekki að klára alla pappíra – Ugarte ekki með gegn Liverpool

10:47 Chelsea færist nær því að kaupa Jadon Sancho í dag

10:37 Bjóða Arsenal að kaupa Sterling – Skoðuðu að fá Gordon

10:12 Spánverjarnir gefast ekki upp – Eru á fullu í viðræðum og reyna að kaupa Orra í dag

10:00 Ward-Prowse fer frá West Ham í dag – Lánaður í Skírisskóg

09:36 Todd Boehly lagar bókhaldið hjá Chelsea í dag – Franska liðið hans kaupir lítt þekkta stærð af Chelsea á haug af pening

09:14 Sam Johnstone er orðinn markvörður Wolves en hann er keyptur á 10 milljónir punda frá Crystal Palace

09:10 Neal Maupay er orðinn leikmaður Marseille, kemur á láni í eitt ár frá Everton en verður svo keyptur.

08:44 Veskið á loti hjá Al Ahli í dag – Toney mætir og líklega Osimhen líka

08:17 Manuel Ugarte er orðinn leikmaður Manchester United

08:10 Arsenal fær markvörð á láni frá Bournemouth í dag

08:04 Þrír framherjar á blaði hjá Chelsea í dag – Vilja einn og fá Sancho líka

07:59 Osimhen endar líklega í Sádí Arabíu í kvöld

07:00 Framtíð Raheem Sterling er í lausu lofti. Hann er ekki inni í myndinni hjá Chelsea og hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United. Miðað við fréttir frá því í gærkvöldi gæti hann endað hjá Arsenal fyrir gluggalok. Nánar hér.

07:00 James Ward-Prowse gæti yfirgefið West Ham í dag. Hann er skyndilega kominn út í kuldann undir stjórn nýja stjórans Julien Lopetegui. Nottingham Forest hefur áhuga og hefur hann einnig verið orðaður við sitt gamla félag, Southampton, þaðan sem West Ham keypti hann í fyrra.

07:00 Það má búast við að Wilfried Zaha gangi í raðir Lyon á láni frá Galatasaray í dag. Hann hafði verið orðaður við endurkomu í enska boltann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Tvö mismunandi tilboð frá Chelsea á borðinu

Tvö mismunandi tilboð frá Chelsea á borðinu
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Fabrizio Romano flytur stórtíðindi af Orra – Allt virðist klappað og klárt

Fabrizio Romano flytur stórtíðindi af Orra – Allt virðist klappað og klárt
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Einkaviðtal við Jóhann Berg um skrefið til Sádí Arabíu: Peningar höfðu áhrif – „Spennandi ævintýri“

Einkaviðtal við Jóhann Berg um skrefið til Sádí Arabíu: Peningar höfðu áhrif – „Spennandi ævintýri“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

United náði ekki að klára alla pappíra – Ugarte ekki með gegn Liverpool

United náði ekki að klára alla pappíra – Ugarte ekki með gegn Liverpool
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Chelsea færist nær því að kaupa Jadon Sancho í dag

Chelsea færist nær því að kaupa Jadon Sancho í dag
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Chiesa kemst ekki í hóp hjá Arne Slot um helgina

Chiesa kemst ekki í hóp hjá Arne Slot um helgina
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Rooney kemur sér í klandur – Sótölvaður að góla í karókí þegar stutt er í leik

Rooney kemur sér í klandur – Sótölvaður að góla í karókí þegar stutt er í leik