fbpx
Þriðjudagur 27.ágúst 2024
433Sport

Sjáðu ótrúlegt atvik í Hafnarfirði í gær – „Hélt að lögreglan hefði vökulli augu en þetta“

433
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er óhætt að segja að furðulegur dómur hafi verið látinn falla á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær í leik Hauka og Selfoss í 2. deild karla.

Selfyssingar unnu leikinn 1-2 og eru svo gott sem komnir upp í Lengjudeildina. Haukar eru aftur á móti endanlega úr leik í þeirri baráttu.

Seinna mark Selfyssinga kom af vítapunktinum og var þar að verki Gonzalo Zamorano, sem var að skora sitt annað mark í leiknum. Pétur Guðmundsson, reynslumikill dómari leiksins, verður þó sennilega ekki allt of sáttur með ákvörðun sína að dæma vítið.

Aron Fannar Birgisson fór niður í teignum, en í endursýningu má sjá að markvörður Hauka, Magnús Kristófer Anderson, snerti hann ekki. Pétur féll þó fyrir leikrænum tilþrifum Arons og vítaspyrna dæmd.

Töluverð umræða skapaðist um dóminn eftir að upptaka af atvikinu birtist á X (áður Twitter).

„Hvernig í ósköpunum dæmir Pétur víti þarna?“ var til að mynda skrifað.

„Hélt að lögreglan hefði vökulli augu en þetta, þetta eru ákveðin vonbrigði frá nafna mínum,“ skrifaði annar, en Pétur starfar einnig sem lögreglumaður.

Hér að neðan má sjá atvikið sem um ræðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Svona gæti byrjunarlið United litið út með komu Sterling og Chilwell

Svona gæti byrjunarlið United litið út með komu Sterling og Chilwell
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Myndband af konunum vekur óhug – Létu hnefana tala og mörgum var brugðið

Myndband af konunum vekur óhug – Létu hnefana tala og mörgum var brugðið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Alfreð Finnbogason leggur landsliðskóna á hilluna – „Tíminn er réttur núna til að stíga til hliðar“

Alfreð Finnbogason leggur landsliðskóna á hilluna – „Tíminn er réttur núna til að stíga til hliðar“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Í læknisskoðun hjá Arsenal en eiga eftir að ganga frá lausum endum

Í læknisskoðun hjá Arsenal en eiga eftir að ganga frá lausum endum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Lars sendir hjartnæma kveðju til félaga síns sem féll frá í dag – „Alltaf sami hógværi og venjulegi maðurinn“

Lars sendir hjartnæma kveðju til félaga síns sem féll frá í dag – „Alltaf sami hógværi og venjulegi maðurinn“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Útskýrir hvers vegna hann hafnaði gylliboðinu frá Sádi-Arabíu

Útskýrir hvers vegna hann hafnaði gylliboðinu frá Sádi-Arabíu
433Sport
Í gær

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina á Englandi – United fær slæma útreið en Chelsea stekkur upp um sjö sæti milli vikna

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina á Englandi – United fær slæma útreið en Chelsea stekkur upp um sjö sæti milli vikna
433Sport
Í gær

Sven-Göran Eriksson látinn eftir baráttu við krabbamein

Sven-Göran Eriksson látinn eftir baráttu við krabbamein