fbpx
Þriðjudagur 27.ágúst 2024
433Sport

Ragnar opnar sig um sögulegt kvöld – Eftir þetta vissi hann að Strákarnir okkar myndu vinna England

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 27. ágúst 2024 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Sigurðsson fyrrverandi landsliðmaður í knattspyrnu segist hafa lagt allt í sölurnar til að verða atvinnumaður. Ragnar, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segist hafa verið orðinn stressaður um að tækifærið kæmi ekki þegar hann ákvað að hætta í vinnu og skóla og setja allt í boltann:

„Mér fannst ég aldrei vita það að ég væri á leiðinni í atvinnumennsku fyrr en það gerðist. Ég sá stráka sem mér fannst ekki betri en ég fá tækifæri og ég var orðinn aðeins stressaður um að missa af lestinni. En svo tók ég bara ákvörðun um að hætta í bæjarvinnunni og skólanum og setja allt í fótboltann. Ég talaði við foreldra mína og sagðist ætla að hætta að vinna, hætta í skóla og byrja að æfa tvisvar sinnum á dag. Að æfa einu sinni á dag einn og einu sinni á dag með Fylki. Sem betur fer fékk ég 100% stuðning frá þeim og þarna fór ég að finna að ég bætti mig hraðar en hinir í liðinu og hlutirnir fóru að gerast,” segir Raggi og heldur áfram:

„Hæfileikar geta aldrei komið í staðinn fyrir mikla vinnu. Ef að sá sem er mjög hæfileikaríkur leggur ekki mikið á sig mun bilið milli hans og hinna minnka mjög hratt. Í dag er leikurinn orðinn svo taktískur og svo mikið af góðum leikmönnum að þú kemst ekki langt ef þú ert ekki með gott hugarfar.”

Mátti ekki nota lyfin

Ragnar segist alltaf hafa upplifað ofurathygli þegar hann var inni á vellinum í stórum leikjum sem fótboltamaður. Hann er greindur með ADHD, en segir að það hafi aldrei háð sér þegar kom að stóru augnablikunum:

„Ég var alltaf þannig að ég gat verið með ofurathygli þegar ég var inni á vellinum, þó að ég sé með athyglisbrest og hafi átt erfitt með að einbeita mér fyrir utan völlinn. Inni á vellinum náði ég einhvern vegin yfirleitt alltaf ,,laser-focus” og gleymdi öllu öðru. Það er bara svo gaman að vera undir pressu og ég virka best í þeim aðstæðum. Ég held að athyglisbresturinn birtist stundum þannig að manni leiðist bara mjög mikið og nær þess vegna ekki að halda athygli og dettur bara út. Þegar ég fann fyrir leiki að ég væri stressaður fannst mér það alltaf gott af því að þá vissi ég að ég væri tilbúinn,” segir Raggi, sem er greindur með ADHD og hefur tekið lyf við því í gegnum tíðina:

„Maður fær bara undanþágu til að taka lyfin. Ef þú ert greindur með Athyglisbrest færðu leyfi til að nota þessi lyf, sem þú annars mættir ekki nota. Kannski eru ennþá einhver lið eða lönd með fordóma gagnvart þessu og ég þurfti til dæmis að hætta að nota lyfin þegar ég var að spila í Rússlandi. Það skipti engu þó að ég segði að mér liði betur af lyfjunum og ég hætti bara að taka þau. Það þýddi bara að ég var aðeins steiktari en vanalega!”

Voru klárir í að gera allt fyrir liðsfélagann

Í þættinum ræða Sölvi og Raggi um það hve stóran þátt sjálfstraust og hugarfar spila í fótbolta og Raggi segir að rétt hugarfar, trú og vilji sé algjört lykilatriði:

„Það mikilvægasta í fótboltanum er ,,attitude”, trú og vilji. Þú getur ekki unnið neitt ef þú trúir því ekki og lætur hugarfarið taka þig þangað. Auðvitað verður þú að geta eitthvað, en til þess að ná upp stemmningu og sjálfstrausti verður viðhorfið að vera í lagi. Það var þetta sem heppnaðist fullkomlega í landsliðinu þegar okkur gekk sem best. Jafnvel þó að það væri einhver sem var ekki besti vinur þinn utan vallar, þá bárum við svo mikla virðingu fyrir því að við værum í stríði saman og það voru allir 100%. Við vorum tilbúnir að gera allt fyrir hvorn annan inn á vellinum. Ég vildi að þeim sem voru að spila í kringum mig liði þannig að ef þeir stigu feilspor, þá væri ég mættur til að redda því í allar áttir. Ég spilaði alltaf minn besta leik þegar ég var algjörlega að spila fyrir liðið. Við vorum tilbúnir að fara í stríð með hvor öðrum. Hlaupa út um allt og vera til staðar ef einhver var að gera mistök,” segir Raggi, sem talar í þættinum um daginn sem Ísland sló út England og hann var valinn maður leiksins:

„Þetta var stærsti leikur okkar allra á ferlinum. Trúin fór aldrei neitt, en ég man þegar við löbbuðum inn göngin fyrir leik hvað mér fannst þeir allir stórir. Ég hafði aldrei hugsað svona áður fyrir neinn leik á ferlinum, en þegar við stóðum þarna við hliðina á þeim hugsaði ég: ,,Shit hvað þeir eru allir stórir”. Svo byrjar leikurinn og við fáum strax á okkur víti sem þeir skora úr og ég gjörsamlega brjálaðist. Akkurat á þessu augnabliki hugsaði ég að það væri ekki fræðilegur möguleiki á að við myndum tapa leiknum á einhverju svona dæmi. Ég hef aldrei horft aftur á leikinn, en ef ég man rétt, þá tókum við miðjuna og negldum fram og fengum innkastið sem ég svo skoraði úr. Þetta gerðist eins og það væri í „Slow motion”. Ég sá að þeir settu Wayne Rooney á Kára Árna, sem var algjört rugl og sá sem var að dekka mig (Kyle Walker) missti einbeitinguna. Ég er ekki fljótari en hann og ekki sterkari en hann, en ég náði að losa mig og skora. Svo man ég bara að það braust út algjört brjálæði þegar við unnum leikinn og það er engin leið að lýsa því.”

Áfangastaðurinn skiptir miklu máli

Í þættinum talar Ragnar um hlutverk varnarmannsins sem hann segir á ákveðinn hátt auðveldara en hlutverk þeirra sem þurfa að búa til færi og mörk:

„Það er auðveldara að vera varnarmaður en að vera framar á vellinum, af því að hlutverkið þitt er að eyðileggja sóknir. Að vera skapandi er miklu erfiðara en að skemma. Það er auðveldara að byggja hús en að skemma það og það er auðveldara að eyðileggja sambönd en að byggja upp góð sambönd. Ég held að það sé svolítið þannig í lífinu almennt. En þó að það sé auðveldara að vera varnarmaður af þessarri ástæðu, þá er að sama skapi meiri ábyrgð af því að mistökin eru sýnilegri. Ef markmaður gerir mistök sjá það allir og það kostar mark. En því framar sem þú ert á vellinum, því fleiri geta reddað þér ef þú gerir mistök.”

Ragnar hefur spilað í fjölmörgum löndum og það vakti til dæmis athygli þegar hann fór til Rússlands á hápunkti ferilsins. Hann segir áfangastaðinn skipta máli þegar fótboltamenn skipta um lið og hann hafi til dæmis valið út frá áfangastaðnum þegar hann skipti um lið eftir EM 2016:

„Það spilar alveg þó nokkurn þátt í ákvörðuninni þegar maður er að skipta um lið í hvaða borg maður er að fara. Ég tók á mig töluverða launalækkun til að fara til Fulham af því að mig langaði að vera í London. Ég hefði líklega ekki gert það ef þetta hefði verið önnur borg en London. En þegar þú lendir í því að liðið sem þú ert hjá vill losa sig við þig verður þú eiginlega að fara. Ef þú ert búinn að vera að spila illa ert þú kannski ekki með marga möguleika og þá er oft ekki mikið af möguleikum í stöðunni. En ég held að fólk átti sig ekki alveg á því hvernig þetta gengur fyrir sig. En stundum sér maður eftir á að maður var kannski smeykur við að fara eitthvað af því að maður hafði fordóma fyrir landinu. Ég man til dæmis þegar ég fékk tilboð frá Maccabi Haifa í Ísrael. Það virkaði allt mjög spennandi, en ég var bara hræddur við að fara til Ísraels út af öllum umfjöllununum um stríð og það varð ekkert af því. En eftir því sem ég hef orðið eldri sé ég að maður getur ekki lifað lífi sínu hræddur og oft voru bestu ákvarðanirnar eitthvað sem maður óttaðist fyrst.”

Hægt er að nálgast viðtalið við Ragnar og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Íslendingar út um allt land mokuðu inn peningum um helgina

Íslendingar út um allt land mokuðu inn peningum um helgina
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Svona gæti byrjunarlið United litið út með komu Sterling og Chilwell

Svona gæti byrjunarlið United litið út með komu Sterling og Chilwell
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Yfirgnæfandi líkur á endurkomu Gylfa Þórs í landsliðið – Hópurinn kynntur á miðvikudag

Yfirgnæfandi líkur á endurkomu Gylfa Þórs í landsliðið – Hópurinn kynntur á miðvikudag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Alfreð Finnbogason leggur landsliðskóna á hilluna – „Tíminn er réttur núna til að stíga til hliðar“

Alfreð Finnbogason leggur landsliðskóna á hilluna – „Tíminn er réttur núna til að stíga til hliðar“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hummels búinn að finna sér nýtt lið

Hummels búinn að finna sér nýtt lið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Lars sendir hjartnæma kveðju til félaga síns sem féll frá í dag – „Alltaf sami hógværi og venjulegi maðurinn“

Lars sendir hjartnæma kveðju til félaga síns sem féll frá í dag – „Alltaf sami hógværi og venjulegi maðurinn“
433Sport
Í gær

Hefur spilað lengi með Messi og Ronaldo – Stillt upp við vegg og beðinn um að segja hvor er betri

Hefur spilað lengi með Messi og Ronaldo – Stillt upp við vegg og beðinn um að segja hvor er betri
433Sport
Í gær

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina á Englandi – United fær slæma útreið en Chelsea stekkur upp um sjö sæti milli vikna

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina á Englandi – United fær slæma útreið en Chelsea stekkur upp um sjö sæti milli vikna