Cristiano Ronaldo, goðsögn Manchester United, Real Madrid og Portúgals, ætti að íhuga það að snúa sér að boxi eftir að ferlinum lýkur.
Þetta segir samfélagsstjarnan ‘KSI’ sem er þekktur á YouTube og hefur sjálfur reynt fyrir sér í boxi oftar en einu sinni.
KSI á sér draum og það er að sjá Ronaldo berjast við Zlatan Ibrahimovic sem hefur nú lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril.
Tvær goðsagnir í hringnum hljómar alls ekki illa og er ljóst að þessi viðburður myndi selja gríðarlega vel um allan heim.
KSI gerir sér vonir um að þeir muni slást einn daginn en litlar líkur eru þó á að Ronaldo eða Zlatan hafi áhuga á að stíga inn í hringinn.
Ronaldo er sjálfur byrjaður á YouTube og er nú þegar orðinn gríðarlega vinsæll á samskiptamiðlinum. Hann er í dag leikmaður Al-Nassr í Sádi Arabíu.
,,Maður veit aldrei hvað gæti gerst. Hann gegn Ibrahimovic.. Það yrði eitthvað!“ sagði KSI við TalkSport.
,,Ronaldo hefur tekið yfir YouTube og er með 30 milljónir fylgjenda eftir aðeins einn dag. Hann hefur gert mjög vel en hann er einn þekktasti maður heims svo það má búast við slíkum tölum.“