fbpx
Miðvikudagur 21.ágúst 2024
433Sport

Fabregas að næla í fyrrum liðsfélaga

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 07:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cesc Fabregas, stjóri Como á Ítalíu, er að ná í fyrrum samherja sinn Sergi Roberto til félagsins.

Roberto er nafn sem margir kannast við en hann gerði garðinn frægan með Barcelona – hann hefur leikið þar allan sinn feril.

Roberto er 32 ára gamall en hann yfirgaf uppeldisfélagið í sumar og er fáanlegur á frjálsri sölu.

Spánverjinn á að baki 245 leiki fyrir Barcelona í deild og einnig 11 landsleiki fyrir Spán – hann getur spilað í vörn og á miðjunni.

Fabregas lék með Roberto hjá Barcelona á sínum tíma en hann hefur nú lagt skóna á hilluna og þjálfar Como í efstu deild Ítalíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

U-beygja hjá Ten Hag

U-beygja hjá Ten Hag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Besta deild kvenna: Toppliðin í litlum vandræðum

Besta deild kvenna: Toppliðin í litlum vandræðum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Steinhissa á ummælum Onana í sumar – ,,Hann má ekki við því“

Steinhissa á ummælum Onana í sumar – ,,Hann má ekki við því“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Bíða eftir svari frá Chelsea

Bíða eftir svari frá Chelsea
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

KR slítur samstarfinu fyrirvaralaust – „Kemur okkur á óvart“

KR slítur samstarfinu fyrirvaralaust – „Kemur okkur á óvart“