fbpx
Þriðjudagur 20.ágúst 2024
433Sport

Svona spá Carragher og Neville því að enska úrvalsdeildin muni líta út í vor – Eru mjög ósammála

Helgi Sigurðsson
Þriðjudaginn 20. ágúst 2024 09:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville og Jamie Carragher, sparkspekingarnir geðþekku á Sky Sports, opinberuðu spá sína fyrir leiktíðina í ensku úrvalsdeildinni í hinum geysivinsæla sjónvarpsþætti Monday Night Football í gær.

Einni umferð er lokið í deildinni en um fyrsta þátt vetrarins var að ræða og nýttu félagarnir tækifærið til að opinbera spá sína.

Carragher spáir því að Manchester City verði Englandsmeistari fimmta árið í röð. Neville telur hins vegar að nú sé tími kominn á Arsenal.

Carragher spáir því að Arsenal, hans menn í Liverpool og Tottenham fylgi City í Meistaradeildina. Neville spáir hins vegar að City, Manchester United og Chelsea fylgi Arsenal þangað.

Báðir spá þeir að Southampton og Leicester fari niður í B-deildina. Carragher telur að Nottingham Forest geri það einnig en Neville setur Ipswich niður.

Þá telja þeir félagar að Erling Braut Haaland verði markahæsti leikmaður deildarinnar.

Hér að neðan má sjá spá þeirra í heild.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Besta deildin: ÍA vann meistarana á útivelli – Blikar með öruggan sigur

Besta deildin: ÍA vann meistarana á útivelli – Blikar með öruggan sigur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

England: Vardy hetjan gegn Tottenham

England: Vardy hetjan gegn Tottenham
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Trent vildi ekki tala við blaðamenn – ,,Get ekki ímyndað mér hvað þið viljið ræða“

Trent vildi ekki tala við blaðamenn – ,,Get ekki ímyndað mér hvað þið viljið ræða“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Dómarinn viðurkenndi mistök – ,,Hefði getað breyt leiknum“

Dómarinn viðurkenndi mistök – ,,Hefði getað breyt leiknum“
433Sport
Í gær

Henry segir starfi sínu lausu

Henry segir starfi sínu lausu
433Sport
Í gær

Myndband: Kastaði af sér þvagi í miðjum leik – Átti eftir að iðrast þess

Myndband: Kastaði af sér þvagi í miðjum leik – Átti eftir að iðrast þess