Como hefur mikinn áhuga á Nico Paz, efnilegum miðjumanni Real Madrid.
Um er að ræða 19 ára gamlan leikmann sem spilar fyrir varalið Real Madrid, en á þó einnig að baki átta leiki fyrir aðalliðið. Hann kom inn í barna- og unglingastarf félagsins 12 ára að aldri frá Tenerife.
Como, sem er með Cesc Fabregas í brúnni, er nýliði í Serie A á þessari leiktíð og vill fá þennan efnilega leikmann í sínar raðir til að styrkja sig.
Viðræður eiga sér nú stað, en Real Madrid vill setja möguleika á að kaupa Paz til baka inn í samning leikmannsins.
Paz er fæddur á Tenerife en er með argentískt ríkisfang og hefur spilað fyrir yngri landslið Argentínu.
⚪️🇦🇷 Como are pushing to sign Nico Páz from Real Madrid, as exclusively revealed yesterday.
Negotiations have already started over permanent transfer with buy-back clause for Real to keep control on Nico's future moves.
Cesc Fabregas, involved in talks. pic.twitter.com/uOt5BcitKe
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 20, 2024