Mason Greenwood átti stórleik fyrir lið Marseille í Frakklandi í dag er liðið mætti Brest í fyrstu umferð.
Greenwood var keyptur til Marseille í sumar en hann var áður á mála hjá Manchester United.
Englendingurinn átti afar góðan leik og hefði hæglega getað skorað þrennu en sætti sig að lokum við tvö mörk.
Greenwood skoraði fyrsta og þriðja mark Marseille í 5-1 sigri á útivelli en það seinna var úr vítaspyrnu.
Brest fékk sín færi í leiknum og klikkaði á meðal annars á vítaspyrnu er staðan var 1-0 fyrir gestunum.