West Ham 1 – 2 Aston Villa
0-1 Amadou Onana(‘4)
1-1 Lucas Paqueta(’37, víti)
1-2 Jhon Duran(’79)
Aston Villa vann síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en liðið mætti West Ham á útivelli.
Amadou Onana og Jhon Duran sáu um að tryggja sigurinn en sá síðarnefndi skoraði sigurmarkið.
Lucas Paqueta skoraði eina mark West Ham í viðureigninni en hann kom boltanum í netið af vítapunktinum á 37. mínútu.