Arsenal byrjar tímabilið í ensku úrvalsdeildinni á góðum sigri en liðið mætti Wolves á heimavelli í dag.
Arsenal var við stjórnvölin mestan hluta leiks en Wolves ógnaði þó marki heimamanna á köflum.
Bukayo Saka átti frábæran leik fyrir Arsenal en hann bæði lagði upp og skoraði í 2-0 sigri á Úlfunum.
Everton fékk skell á heimavelli í fyrstu umferð en Brighton mætti til leiks og vann öruggan 3-0 sigur.
Ashley Young fékk beint rautt spjald á 66. mínútu fyrir lið Everton en staðan var þá 2-0 fyrir Brighton.
Newcastle vann þá Southampton 1-0 og Nottingham Forest og Bournemouth skildu jöfn.
Arsenal 2 – 0 Wolves
1-0 Kai Havertz(’25)
2-0 Bukayo Saka(’74)
Everton 0 – 3 Brighton
0-1 Kaoru Mitoma(’26)
0-2 Danny Welbeck(’56)
0-3 Simon Adingra(’87)
Newcastle 1 – 0 Southampton
1-0 Joelinton(’45)
Nott. Forest 1 – 1 Bournemouth
1-0 Chris Wood(’23)
1-1 Antoine Semenyo(’88)