Stórstjarnan Kyle Walker er í vandræðum þessa dagana en hjónaband hans við eiginkonu sína Annie Kilner virðist hanga á bláþræði.
Walker hefur verið sparkað út af heimili sínu í annað sinn en hann bjó ásamt Annie í risahúsi í Cheshire.
Samkvæmt enskum miðlum lifir Walker nú í íbúð sem er í eigu Manchester City en hún er nálægt æfingasvæði félagsins.
Annie komst nýlega að því að Walker hefði haldið framhjá í annað sinn en hann barnaði konu að nafni Lauryn Goodman.
Það var í annað sinn sem Walker barnaði þá ágætu konu sem hefur sjálf verið dugleg að tjá sig um málið opinberlega.
Walker verður fyrirliði Manchester City sem spilar við Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina.
Walker á tvö risahús á svæðinu en Annie er nú búsett í einu og Lauryn býr í hinu – Walker þurfti því að finna aðra lausn.
Þetta er í annað sinn sem Annie sparkar Walker út af heimili sínu en þau lentu í miklum útistöðum undir lok síðasta árs.