Valur 0 – 2 Breiðablik
0-1 Damir Muminovic(’37)
0-2 Ísak Snær Þorvaldsson(’67)
Breiðablik vann dýrmætan sigur í Bestu deild karla í kvöld er liðið mætti Val á útivelli.
Blikar þurftu sigur til að halda í við topplið Víkings sem er með þriggja stiga forskot eftir þennan leik.
Valur er að missa af lestinni en liðið er í þriðja sæti með 31 stig, níu stigum á eftir toppliðinu.
18 umferðir eru búnar í efstu deild en stutt er í að úrslitakeppnin fari fram og deildinni verði skipt í tvennt.