Bruno Fernandes hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Manchester United með mögleika á auka ári. Félagið mun staðfesta þetta í dag.
Fabrizio Romano segir frá en Bruno verður með því launahæsti leikmaður félagsins.
Bruno var með 220 þúsund pund á viku hjá United en nú er fullyrt að hann fari í sama launaflokk og Casemiro sem er launahæsti leikmaður United.
Bruno mun þéna 350 þúsund pund á viku á nýjum samningi. Launin hjá Bruno hækka því um 22 milljónir á viku og verða nú 62 milljónir króna á viku.
Bruno hefur verið jafn besti leikmaður United síðustu fjögur árin og var gerður að fyrirliða liðsins á síðasta ári.