Noussair Mazraoui er kominn til Manchester United en félagaskipti hans voru staðfest nú í kvöld.
Um er að ræða hægri bakvörð sem kemur frá Bayern Munchen þar sem hann lék undanfarin tvö ár.
Fyrir það var Mazrouai hjá Ajax í Hollandi og þekkir núverandi stjóra United, Erik ten Hag, ansi vel.
Mazrouai spilaði 19 deildarleiki fyrir Bayern síðasta vetur og einnig 19 leiki tímabilið áður.
Þessi 26 ára gamli leikmaður gerir samning til ársins 2028.