Erik ten Hag, stjóri Manchester United, er vongóður um að Casemiro muni eiga betra tímabil í vetur en hann átti í fyrra.
Casemiro er að byrja sitt þriðja tímabil með United en eftir mjög gott fyrsta ár var frammistaðan undir pari í vetur.
Ten Hag hefur þó enn fulla trú á Brasilíumanninum og mun treysta á hann á komandi leiktíð.
,,Hann var með á undirbúningstímabilinu og er í frábæru standi. Við náum vel saman sem lið og vinnum saman og ég held að það henti Case vel,“ sagði Ten Hag.
,,Hann getur í kjölfarið boðið upp á sín eigin gæði og þú sérð um leið hversu mikilvægur hann er fyrir leikinn og okkar lið.“
,,Casemiro er mikill leiðtogi í okkar liði bæði varnarnega og sóknarlega, við stöndum allir saman.“