Virgil van Dijk segir að Liverpool hafi ekki opnað samtalið um það að framlengja samning hans. Van Dijk er að hefja sitt síðasta ára á samningi.
Þessi hollenski varnarmaður hefur verið einn besti varnarmaður fótboltans síðustu ár.
Van Dijk, Trent Alexander-Arnold og Mo Salah eru allir á leið inn í sitt síðasta ár á samningi.
„Það hafa engar breytingar átt sér stað,“ segir Van Dijk um það hvort viðræður séu farnar af stað.
Van Dijk og Liverpool er á leið inn í tímabilið um næstu helgi með nýjan stjóra, Arne Slot.
„Þetta hefur byrjað vel, mikil vinna farið í þetta bæði í líkamlega og tæknilega þáttinn. Við verðum að vera klárir gegn Ipswich á laugardag, það verður erfitt verkefni.“