KR vann stórleikinn í Bestu deild karla í kvöld en leikið var gegn FH á Meistaravöllum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson var að horfa á sinn fyrsta leik í liðsstjórn KR en hann mun taka við liðinu eftir tímabilið.
KR hafði betur 1-0 en Aron Þórður Albertsson skoraði eina markið undir lok fyrri hálfleiks.
Viktor Jónsson bætti þá við enn einu markinu í sumar er ÍA vann mikilvægan 1-0 heimasigur á Fram.
KR 1 – 0 FH
1-0 Aron Þórður Albertsson(’45)
ÍA 1 – 0 Fram
1-0 Viktor Jónsson(’46)