Alex Oxlade-Chamberlain gæti verið á leið aftur til Englands en mun ekki skrifa undir í efstu deild þar í landi.
Frá þessu greina enskir miðlar en miðjumaðurinn var áður á mála hjá Southampton, Arsenal og Liverpool þar í landi.
Nú er Sheffield United að reyna að semja við þennan fyrrum enska landsliðsmann sem spilaði í Tyrklandi í vetur.
Besiktas vill ekki nota Oxlade-Chamberlain á komandi tímabili og er því vel reiðubúið að losa sig við hann í þessum glugga.
Oxlade-Chamberlain er enn aðeins 30 ára gamall og mun mögulega biðja um laun sem Sheffield hefur ekki efni á að borga.