Chelsea getur því miður ekki treyst á fyrirliða sinn Reece James sem er enn og aftur að glíma við meiðsli.
Frá þessu greinir Athletic en James meiddist á æfingu á dögunum stuttu eftir leik Chelsea við Real Madrid í Bandaríkjunum.
James er að glíma við meiðsli aftan í læri og verður ekki til taks er þeir bláklæddu hefja leik í ensku úrvalsdeildinni.
James hefur glímt við mörg meiðsli á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur og þurfti að fara í aðgerð undir lok síðasta árs.
Varnarmaðurinn verður í banni í byrjun tímabils en litlar líkur virðast vera á að hann nái fyrstu leikjum Chelsea í úrvalsdeildinni.
James hefur misst af 82 leikjum af síðistu 190 í úrvalsdeildinni frá árinu 2019 og byrjaði aðeins fimm leiki síðasta vetur.