Chelsea hefur staðfest komu vængmannsins Pedro Neto en hann kemur til félagsins frá Wolves.
Chelsea borgar rúmlega 50 milljónir punda fyrir Neto sem var einn allra mikilvægasti leikmaður Úlfanna.
Neto gerir sex ára samning við Chelsea og er möguleiki á að sá samningur verði framlengudr um eitt ár.
Um er að ræða öflugan vængmann sem verður líklega byrjunarliðsmaður á komandi tímabili. Hann er hluti af portúgalska landsliðinu.
Neto missti af þónokkrum leikjum Wolves á síðustu leiktíð en hann glímdi við meiðsli. Portúgalinn skoraði þó þrjú mörk í 24 leikjum.