Cole Palmer, leikmaður Chelsea, hefur loksins fengið að hitta nýjan þjálfara liðsins, Enzo Maresca.
Palmer hefur verið í sumarfríi undanfarið eftir að hafa leikið með enska landsliðinu á EM í sumar.
Maresca tók við Chelsea í sumar og hefur nú hitt sína helstu stjörnu sem raðaði inn mörkum á síðustu leiktíð.
Maresca mun treysta á Palmer á komandi tímabili en um er að ræða 22 ára gamlan leikmann sem skoraði 25 mörk og lagði upp önnur 15 í öllum keppnum í vetur.
Hér má sjá myndband af því er þeir hittust í fyrsta sinn.
Cole is back. pic.twitter.com/oQLMK4YoTU
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 8, 2024