Wayne Rooney fyrrum fyrirliði Manchester United segist aldrei hafa nennt að æfa í sumarfríi sínu og hafi alltaf mætt of þungur til æfinga eftir frí.
Til að koma ekki hræðilega út í mælingum var Rooney hins vegar með sérstaka aðferð til að mæta til leiks ekki alltof þungur.
„Ég hataði alltaf undirbúningstímabilið, ég kom alltaf of þungur til baka. Ég vissi að ég yrði að leggja mikið á mig,“ segir Rooney.
Hann segist aldrei hafa nennt að æfa í sumarfríinu sínu. „Ég fór með spinning hjólið inn í gufu degi áður en við komum saman,“ segir Rooney.
„Ég sat þar inni í 90 mínútur og hjólaði í fötum til að léttast.“
„Ég borðaði ekkert og drakk ekki sopa af neinu,“ sagði Rooney sem fékk hrós frá Roy Keane fyrir það hvernig hann gerði hlutina.