Valur hafði í nokkur skipti reynt að fá Ólaf Jóhannesson til að taka við liðinu áður en ákveðið var að reka Arnar Grétarsson úr starfi fyrir helgi.
Jóhann Már Helgason sérfræðingur Dr. Football sagði frá og 433.is hefur fengið staðfest úr herbúðum Vals.
Ólafur hefur stýrt Val í tvígang en hafði ekki áhuga á því að stíga inn núna, hann starfar fyrir félagið í dag og er í miklum samskiptum við þá sem ráða á Hlíðarenda.
Srdjan Tufegdzic var ráðinn þjálfari Vals á fimmtudag þegar ákveðið var að reka Arnar úr starfi.
Túfa gerði þriggja ára samning við Val en hann hefur leik með liðið í dag gegn sínu gamla félagi KA.