Mark Bullingham stjórnarformaður enska knattspyrnusambandsins hefur fengið leyfi frá stjórn sambandsins að ræða við erlenda þjálfara.
Fyrst um sinn skoðaði enska sambandið aðeins enska þjálfara til að taka við af Gareth Southgate.
Southgate sagði starfi sínu lausu eftir Evrópumótið og leitar enska sambandið nú að arftaka hans.
Eddie Howe, Graham Potter og fleiri hafa verið orðaðir við starfið en nú skoðar enska sambandið erlenda þjálfara.
Guardian segir að leitin sé í fullum gangi en enska sambandið ætlar þó að gefa sér góðan tíma og reyna að vanda leitina.