Dagur Örn Fjeldsted hefur skrifað undir samning við HK sem gildir út tímabilið í Bestu deildinni.
Þetta staðfestir HK í kvöld en um er að ræða leikmann Breiðabliks sem kemur á lánssamningi.
Dagur er 19 ára gamall en tækifærin hafa verið af skornum skammti í Kópavogi þetta sumarið.
Dagur er hægri vængmaður sem spilaði átta deildarleiki fyrir Blika og hefur þá skorað eitt mark.
Hann gæti spilað gegn KR á fimmtudaginn næstkomandi.