Joao Neves er orðinn leikmaður Paris Saint-Germain en frá þessu hefur franska félagið greint.
Neves hefur verið orðaður við PSG í allt sumar en önnur félög voru einnig að horfa til leikmannsins.
Um er að ræða 19 ára gamlan miðjumann sem kemur frá Benfica en hann kostar allt að 70 milljónir evra.
Neves var á óskalista Manchester United fyrr í sumar en hann ákvað að semja í París.
Neves er portúgalskur landsliðsmaður og gerir hann fimm ára samning við PSG.