Spænski miðillinn Mundo Deportivo fullyrðir það að Mikel Merino sé búinn að ákveða það að ganga í raðir Arsenal í sumar.
Merino hefur verið á óskalista Arsenal í allt sumar en hann er 28 ára gamall og leikur með Real Sociedad.
Merino er einnig á óskalista stórliðs Barcelona en Arsenal virðist hafa unnið kapphlaupið að þessu sinni.
Spánverjinn þekkir það vel að spila á Englandi en hann lék með Newcastle í um tvö tímabil en stóðst ekki beint væntingar þar 2017-2019.
Merino hefur verið frábær fyrir Sociedad undanfarin sex ár og er útlit fyrir að hann ætli að reyna fyrir sér á Englandi á nýjan leik.