FC Bayern hefur samþykkt tilboð frá Manchester United í Noussair Mazraoui, Guardian segir frá þessu.
Kaupverðið er sagt vera 15 milljónir punda fyrir hægri bakvörðinn.
United þarf hins vegar að selja Aaron Wan-Bissaka fyrst áður en kaupin á Noussair Mazraoui verða staðfest.
Mazraoui er 26 ára bakvörður frá Marokkó en hann lék undir stjórn Erik ten Hag hjá Ajax áður en hann fór til Bayern.
Wan-Bissaka er sagður nálægt því að fara til West Ham en United mun ekki kaupa Mazraoui fyrr en hann fer.
Guardian telur að málið gæti gengið hratt í vikunni en Mazraoui og Antony kantmaður United náðu vel saman hjá Ajax og vonast Ten Hag að þetta geti hjálpað Antony að finna sig hjá United.