Xavi Simons mun taka ákvörðun í þessari viku um hvort hann verði áfram hjá þýska félaginu RB Leipzig.
Frá þessu greinir Fabrizio Romano en þónokkur félög eru að sýna þessum skemmtilega leikmanni áhuga.
Simons er samningsbundinn Paris Saint-Germain í Frakklandi en virðist ekki eiga framtíð fyrir sér í París.
Leipzig er vongott um að Simons semji endanlega í sumar en Bayern Munchen er einnig að sýna áhuga.
Simons er miðjumaður og á að baki 20 landsleiki fyrir Holland en hann lék með Leipzig í láni á síðustu leiktíð.