fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
433Sport

Höfnuðu fyrsta tilboðinu í Olmo

Helgi Sigurðsson
Fimmtudaginn 25. júlí 2024 12:13

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

RB Leipzig hefur hafnað fyrsta tilboði Barcelona í Dani Olmo. Sky Sports segir frá.

Olmo kom upp í gegnum unglingastarf Barcelona en hefur verið hjá Leipzig síðan 2020. Hann átti flott Evrópumót með spænska landsliðinu, þar sem hann og liðsfélagar hans fóru alla leið og unnu.

Hinn 26 ára gamli Olmo hefur verið orðaður við stórlið í sumar og var Manchester City til að mynda talið hafa áhuga á honum.

Nú hefur Barcelona hins vegar skellt tilboði á borðið. Hljóðaði það upp á allt að 60 milljónir evra en hjá Leipzig voru menn ekki sáttir með greiðslufyrirkomulagið sem spænska félagið lagði til.

Börsungar vildu fá að borga 40 milljónir evra strax, en að restin af upphæðinni yrðu árangurstengdir bónusar.

Tilboðinu var því hafnað og þarf Barcelona að reyna aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Einlægur Arnar sáttur þrátt fyrir erfiðar vikur – „Örugglega meiri líkur á að ég verði fyrir loftsteini hér og nú“

Einlægur Arnar sáttur þrátt fyrir erfiðar vikur – „Örugglega meiri líkur á að ég verði fyrir loftsteini hér og nú“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Aron allur að koma til – „Undir Arnari komið“

Aron allur að koma til – „Undir Arnari komið“
433Sport
Í gær

Hafnaði þrefalt stærri samningi til að flytja til Kanaríeyja

Hafnaði þrefalt stærri samningi til að flytja til Kanaríeyja
433Sport
Í gær

Listi yfir þá launahæstu á Englandi opinberaður – Manchester áberandi og athyglisverð nöfn koma við sögu

Listi yfir þá launahæstu á Englandi opinberaður – Manchester áberandi og athyglisverð nöfn koma við sögu