Jude Bellingham er einn besti og vinsælasti fótboltamaður heims í dag. Kærasta hans er þó ekki síður að slá í gegn.
Hinn 21 árs gamli Bellingham er á mála hjá Real Madrid og er ein stærsta stjarna enska landsliðsins, sem komst í úrslitaleik EM í sumar.
Kærasta hans er jafngömul og hann og heitir Laura Celia Valk.
Hún er fyrirsæta og það er óhætt að segja að vinsældir hennar á Instagram aukist hratt. Eru fylgjendur hennar orðnir vel yfir hálfa milljón og bætist hratt við hópinn.
Valk birti myndir af sér á dögunum sem hafa fengið gífurlega góð viðbrögð og birtust þær í enskum götublöðum einnig.
Hér að neðan má sjá myndirnar.