Trent Alexander-Arnold, leikmaður Liverpool, er ákveðinn í því að það sé aðeins einn sem komi til greina sem besti leikmaður sögunnar.
Það er goðsögnin sjálf Lionel Messi sem spilar í dag með Inter Miami en var áður hjá Barcelona og Paris Saint-Germain.
Margir eru sammála þessari skoðun Trent sem hefur fengið að spila við Messi á sínum ferli.
,,Það verður að vera Messi að mínu mati. Það er besti leikmaður sem ég hef mætt á mínum ferli,“ sagði Trent.
,,Það er besti leikmaður sem hefur spilað leikinn. Að ímynda mér einhvern betri en hann, heilinn minn ræður ekki við það.“
,,Það er einfaldlega ekki hægt að verða betri en hann í fótbolta.„