Willum Þór Willumsson hefur skrifað undir samning við Birmingham í þriðju efstu deild Englands en frá þessu var greint í gær.
Willum er öflugur miðjumaður sem hefur spilað níu landsleiki fyrir Ísland frá árinu 2019.
Miðjumaðurinn er 25 ára gamall en hann var áður hjá Go Ahead Eagles í Hollandi í tvö ár.
Fyrir það lék Willum með BATE í Hvíta-Rússlandi en er uppalinn hjá Breiðabliki þar sem hann lék í efstu deild hér heima.
Willum kostar Birmingham um fjórar milljónir evra en hann gerir fjögurra ára samning við félagið.
Birmingham lék í næst efstu deild á síðustu leiktíð en lenti í 22. sæti og féll.