Bakvörðurinn Thomas Meunier er kominn aftur til Frakklands og mun spila með íslenskum landsliðsmanni.
Frá þessu var greint í gær en Meunier skrifar undir tveggja ára samning við franska félagið.
Hákon Arnar Haraldsson er á meðal leikmanna Lille og spilaði nokkuð stórt hlutverk á síðustu leiktíð.
Meunier er fyrrum belgískur landsliðsmaður og á að baki leiki fyrir lið eins og Paris Saint-Germain og Dortmund.
Lille fær Meunier á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Dortmund rann út og er hann mikill liðsstyrkur.