Leny Yoro er genginn í raðir Manchester United en hann kemur til félagsins frá Lille í Frakklandi.
Um er að ræða gríðarlega efnilegan hafsent sem er aðeins 18 ára gamall.
United er talið borga rúmlega 50 milljónir punda fyrir Yoro en sú upphæð gæti hækkað með árunum.
Yoro gerir fimm ára samning við United en hann er einn allra efnilegasti miðvörður Evrópu.
Yoro er annar leikmaðurinn sem kemur til United í sumar á eftir Hollendingnum Joshua Zirkzee.