Albert Guðmundsson sýndi á Instagram fyrir helgi frá gjöf sem hann fékk frá aðdáanda. Um var að ræða kampavínsflösku.
Íslendingurinn fór hamförum með Genoa á síðustu leiktíð, skoraði 14 mörk og lagði upp 4 í Serie A. Hefur hann verið orðaður við hvert stórliðið á fætur öðru í kjölfarið.
Aðdáandinn sem um ræðir kveðst hafa unnið Fantasy-deild sína vegna frammistöðu Albert. Um er að ræða svipaðan leik og þann sem er í kringum ensku úrvalsdeildina og er afar vinsæll nema þessi er fyrir Serie A.
Albert hafði gaman að og birti eftirfarandi mynd á Instagram.