Stuðningsmenn albanska liðsins Vllaznia réðust á öryggisverði á Hlíðarenda eftir leik liðsins við Val hér á landi í undankeppni Sambandsdeildarinnar í gær. Náðist það á upptöku í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport.
Albanirnir voru allt annað en sáttir með uppbótartímann í leiknum en á níundu mínútu hans jafnaði Valur í 2-2. Það er því allt jafnt fyrir seinni leik liðanna ytra.
Það varð allt vitlaust eftir leik og þurfti að kalla til lögreglu. Auk þess sem stuðningsmenn létu höggin flakka hótuðu einhverjir stjórnarmenn Vllaznia stjórnarmönnum Vals lífláti við komuna til Albaníu í seinni leikinn. Þetta kemur fram á mbl.is. Þar segir einnig að stuðningsmaður albanska liðsins hafi hrækt á fjórða dómara leiksins. Einhverjir voru handteknir í tengslum við málið.
Á Vísi segir að átök hafi þá einnig brotist út fyrir utan leikvanginn í gær. Hótanir voru hafðar í garð stuðnings- og stjórnarmanna Vals.
Hér neðar má sjá myndband af átökunum í stúkunni úr útsendingu Stöðvar 2 Sport.
Sem fyrr segir lauk leiknum sjálfum 2-2. Guðmundur Andri Tryggvason kom Valsmönnum yfir snemma leiks en Ardit Krymi jafnaði á 23. mínútu. Staðan í hálfleik var jöfn.
Kevin Dodaj virtist vera að tryggja Vllaznia sigurinn á 85. mínútu en Lúkas Logi Heimisson jafnaði í blálokin.