Juventus hefur áhuga á Jadon Sancho, leikmanni Manchester United, og er opið fyrir því að senda Federico Chiesa í hina áttina.
Það er ítalski miðillinn Gazzetta dello Sport sem segir frá þessu, en bæði Sancho og Chiesa hafa verið orðaðir frá sínum liðum.
Sancho var á láni hjá Dortmund seinni hluta síðustu leiktíðar. Samband hans og stjórans Erik ten Hag er alls ekki gott og ólíklegt að þeir geti unnið saman á ný.
Þá er Chiesa ekki inni í myndinni hjá nýjum stjóra Juventus, Thiago Motta. Félögin gætu því séð það sem góða lausn að skiptast á leikmönnum.