fbpx
Mánudagur 15.júlí 2024
433Sport

Leigubílstjóra fannst hann niðurlægður – Þetta gerðu farþegarnir á meðan hann skrapp út úr bílnum

433
Fimmtudaginn 11. júlí 2024 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

The Upshot rifjaði upp rosalega sögu af Jonny Evans og liðsfélögum hans í West Brom á sínum tíma.

Leikmannahópur WBA var í æfingaferð í Barcelona árið 2018. Þá var Evans, sem skrifaði nýlega undir skammtímasamning við Manchester United, á mála hjá félaginu.

Eftir góða drykkju á hótelinu ákváðu nokkrir úr liðinu, Evans, Gareth Barry, Jake Livermore og Boaz Myhill að fara á djammið. Það var hins vegar allt lokað og enduðu þeir á að taka leigubíl á McDonalds.

Þeir sendu bílstjórann inn að panta mat en á meðan brunuðu þeir í burtu á bílnum hans.

Þeir voru á rúntinum til 5:30 um morguninn og lögðu leigubílnum fyrir utan hótelið.

Hringt var á lögreglu og málið rataði í alla fjölmiðla Bretlands, sem og víðar, í kjölfarið.

Evans var fyrirliði WBA á þessum tíma en var bandið tekið af honum fyrir athæfið í Katalóníu.

WBA féll úr ensku úrvalsdeildinni sama ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sverrir á leið aftur til Grikklands

Sverrir á leið aftur til Grikklands
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sverrir sagður í skrýtinni stöðu – „Það hefur eitthvað súrnað, það er eitthvað í gangi“

Sverrir sagður í skrýtinni stöðu – „Það hefur eitthvað súrnað, það er eitthvað í gangi“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fá að spila heimaleikinn gegn Val í Albaníu þrátt fyrir lætin á Hlíðarenda

Fá að spila heimaleikinn gegn Val í Albaníu þrátt fyrir lætin á Hlíðarenda
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Amanda til hollensku meistaranna – Gæti mætt Val á næstunni

Amanda til hollensku meistaranna – Gæti mætt Val á næstunni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Messi meiddist er Argentína vann úrslitaleikinn

Messi meiddist er Argentína vann úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Argentína landaði Copa America-titlinum – Messi meiddist og fór grátandi af velli

Argentína landaði Copa America-titlinum – Messi meiddist og fór grátandi af velli