Joshua Zirkzee, sóknarmaður Bologna, nálgast það óðfluga að verða leikmaður Manchester United.
United hefur verið á eftir hollenska landsliðsmanninum undanfarið og virðist vera að klófesta hann. Nú hefur félagið náð samkomulagi við leikmanninn sjálfan.
Rauðu djöflarnir létu Bologna vita af þessu í gær en nú þurfa félögin að ná saman.
Viðræður um kaupverð eiga sér stað en klásúla upp á 40 milljónir evra er í samningi Zirkzee hjá Bologna. Getur United því virkjað hana ef erfiðlega gengur að semja um kaupverðið.
🚨🇳🇱 Manchester United and Joshua Zirkzee, almost there.
Man Utd have now informed Bologna about agreement reached with Zirkzee over personal terms.
All done also with JZ’s agent.
Man Utd, talking to Bologna about new deal structure… or they can trigger €40m release clause. pic.twitter.com/8TVVIdV6Zd
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 7, 2024